Tjarnarskóli Lítill skóli með stórt hjarta

fyrir nemendur í 7. - 10. bekk

 

Home
Umsóknir
Starfsmenn
Um skólann
Myndir
Foreldrar/viðhorf
Framhaldsskólar
Skólaráð
Sjálfsmat
Starfsáætlun

Skóladagatal 2011-2012

Heimasíða fyrir jól.pdf

Framundan:

Þorgrímur Þráinsson gestur í 10. bekk, 31. janúar

Ungbarnadagar verða hjá 10. bekk 1. - 3. febrúar

Próf 2. annar hefjast 13. febrúar

Vetrarfrí  23. og 24. febrúar

Afhending einkunna 27. febrúar

Viðtalsdagur með nemendum og foreldrum 28. febrúar

Þriðja önn hefst 29. febrúar

Skil á rannsóknarverkefni 19. mars

 

 

   
Heimilisfang:
Lækjargata 14b
pósthólf 859
121 Reykjavík  
 Símanúmer:
 5624020 og 5516820
Tjarnarskóli
var stofnaður árið 1985 af Margréti Theodórsdóttur og Maríu Solveigu Héðinsdóttur.  
Skólaárið 2011-2012
er 27. starfsár
skólans.
 
 

Viðbrögð við óveðri tilmæli til foreldra

 

 

Fréttir

Janúar

 
   
Jón Jónsson frábær gestur  
   
 
   
Í upphafi þemadaga í skólanum mætti Jón Jónsson í skólann til þess að gefa góð ráð um blaðaútgáfu. Jón er ritstjóri Monitors sem kemur út einu sinni í viku og er gefið út fyrir ungt fólk. Hann kom með margar gagnlegar ábendingar og sagði nemendum að lokum hvað er framundan hjá honum á tónlistarsviðinu.   
   
   
   
   
   
   
Skypesamband við nemendur í Guildford  
   
 
   
Kvosarnemendur hafa verið í netsambandi við nemendur í Holy Trinity skólanum í Guildford, Englandi. Fyrir skömmu var skemmtilegt netspjall á milli hópanna. Það hefur verið ákveðið að fimm nemendur í bekknum fari í heimsókn í marsmánuði til Englands, ásamt tveimur kennurum. Þá gefst spennandi tækifæri á að kynnast nýjum nemendum, æfa sig í tungumálinu þeirra. Við eigum síðan von á nemendum frá enska skólanum þegar nær dregur vori.   
   
   
   
   
   
   
Ungbarnadagar nálgast   
   
   
   
Í byrjun febrúar ,,eignast" tíundu bekkingar ,,barn" þegar þau taka þátt í ungbarnadögum. Þetta er í þriðja sinn sem við höfum verkefnið á dagskrá. Þessa daga verða nemendur með tölvustýrt barn í tvo og hálfan sólahring. Undirbúningur hefur staðið yfir í janúarmánuði og hluti hans var að fræða foreldra (væntanlega afa og ömmur í bekknum) um það sem koma skal. Ólafur sýndi þeim m.a. óléttubumbu sem er um 9 kíló. Nemendur, bæði strákar og stelpur, fá síðan tækifæri að hafa bumbuna til þess að gera sér betur grein fyrir hvað það er að ganga með barn.   
   
   
   
Heimsókn í Framhaldsskólann í Mosfellsbæ   
   
 
   
Tíundubekkingar og Sirrí hafa heimsótt nokkra framhaldsskóla undanfarna mánuði. Síðasta heimsókn var í F.Mos.Nemendur verða alltaf margs vísari í hverri heimsókn. Þannig gefst tækifæri á að kynnast ólíkum áherslum í hverjum skóla fyrir sig. Það ætti að auðvelda valið í vor.  
   
   
   
   
   
   
Örugg netnotkun  
   
 
   
Hafþór Birgisson frá SAFT var góður og hressilegur gestur í byrjun árs. Hann ræddi við nemendur og kennara um mikilvægi þess að vera á varðbergi og sýna fyrirmyndarhegðun á netinu sem annars staðar. Gott spjall og fræðandi. Hann ætlar að koma aftur í byrjun febrúar og ræða við foreldra á sömu nótum.  
   
   
   
   
   
 2012  
   
   
   
   
   
Leikhús Tjarnarskóla í Iðnó  
   
 
Einstaklega vel heppnuð sýning - mikil leikgleði  
   
Undanfarna tvo mánuði hafa nemendur í leiklistarhóp Tjarnarskóla undir stjórn Pálínu Jónsdóttur, leikkonu, unnið ötullega að sýningu á Ávaxtakörfunni. Þau aðlöguðu handritið að sínum aldri og útkoman var: Frábær sýning á fjölunum í Iðnó !!!!!!!  Hver unglingur skapaði skemmtilega persónu og það leyndi sér ekki að það ríkti leikgleði í hópnum. Pálina hrósaði nemendum fyrir gott samstarf, sjálfstæði og skemmtilega samvinnu. Nemendur, foreldrar, systkini, afar og ömmur nutu sýningarinnar. Við erum einnig hæst ánægð með Pálínu : ).  
   
   
   
   
   
Rósa, fyrrverandi Tjarnskælingur, á rithöfundabrautinni  
   
 
   
 
   
Rósa Grímsdóttir, fyrrverandi Tjarnarskælingur, kom og las upp úr nýrri bók sinni; Línu Descret, fyrir skömmu. Rósa sækir innblástur sinn frá japönskum teiknimyndasögum og teiknimyndum og myndskreytti sjálf bókina. Hún rifjaði upp að þegar hún útskrifaðist úr Tjarnarskóla fékk hún verðlaunagrip, mús með spjót. Á gripnum stendur: ,,Rósa á rithöfundabrautinni".  Við vorum sannspá! Við óskum Rósu til hamingju með bókina og óskum henni alls hins besta á þessari skemmtilegu braut.  
   
   
   
   
   
   
   
   
Frábærir þemadagar - flottir krakkar  
   
 
   
 
   
Það var frábær stemmning á nýliðnum þemadögum í skólanum. Nemendur kynntu sér tímabilin 1940-1950, 1960-1970 og 1980-1990. Síðasta daginn klæddu nemendur sig upp í samræmi við verkefnin og síðan lukum við deginum með kakói og kleinum. Þann 20. desember verða svo kynnt úrslit um hvaða hópur skoraði hæst og fær verðlaun. Spennandi!  Hægt er að skoða fleiri myndir á Myndir - Þemadagar.  
   
   
   
   
   
Dagur íslenskrar tónlistar  
   
 
Flottir!  
   
Við tókum þátt í ,,degi íslenskrar tónlistar" fyrr í mánuðinum. Það var mjög gaman að syngja saman þrjú lög.  
   
   
   
   
   
Stefán frá Unicef - góður gestur  
   
 
   
Stefán Stefánsson var góður gestur í desember. Hann leit inn til okkar og sagði frá starfi Unicef á Íslandi. Stefán er líflegur og skemmtilegur og hreif krakkana með sér. Það var fróðlegt að kynnast merkilegu starfi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna og nemendur voru duglegir að spyrja gestinn. Við þökkum Stefáni fyrir góða og skemmtilega heimsókn.  
   
   
   
   
   
Foreldrar skipulögðu jólaföndurdag með glæsibrag  
   
 
Áhugasamir nemendur og foreldrar  
 
   
Þann 1. desember stóðu foreldrar í skólanum fyrir hefðbundnu jólaföndri. Ein amman kom með fallega hitaplatta, piparkökur voru skreyttar og kerti fengu á sig nýtt yfirbragð. Tíundu bekkingar stóðu fyrir veitingasölu og buðu upp á hlaðborð og ilmandi kakó. Á þriðju hæðinni var sýning á rannsóknarverkefnum nemenda. Það var mjög notaleg stemmning í húsinu sem hægt er að skoða betur á myndasíðu - Foreldraföndur.  
   
   
   
Nóvember  
   
Skógarferð í Öskjuhlíðinni  
   
 
   
   
   
 
Sannkölluð stemmning   
   
Föstudaginn 25. nóvember héldu nemendur í skógarferð í Öskjuhlíðinni. Þar tóku nemendur og kennarar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands á móti þeim. Viðfangsefnið var mjög skemmtilegt; stöðvavinna í tálgun, eldun, upplifun og leikjum. Nýfallinn snjór var yfir öllu og útiveran, skemmtileg viðfangsefni og samveran var frábær. Það er þvílíkt hressandi að stunda skólanámið utan dyra, að minnsta kosti annað veifið. Sjá fleiri myndir á Myndir - Skógarferð.  
   
   
   
   
   
   
   
   
Hrekkjavakan tókst mjög vel  
   
 
Þau fengu viðurkenningu fyrir flotta búninga  
   
Það er alltaf mikil stemmning á árlegu hrekkjavökuballi í skólanum. Þá birtast ýmsar kynjaverur í litríkum búningum og sumir nemendur nær óþekkjanlegir. Að þessu sinni varð Rúnar Breki í 1. sæti, Birta lind og Liv í 2. sæti og Sonja í 3. sæti fyrir flotta búninga. Myndirnar frá kvöldinu segja sína sögu (sjá fleiri myndir á,,Myndir - Hrekkjavaka).  
   
 
   
 
   
 
   
   
   
   
   
   
   
Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona, góður gestur í Skerpu  
   
 
Unnur Ösp í góðum félagsskap  
   
Foreldrar í skólanum stinga stundum upp á gestakomum í skólanum. Ein mamman í 9. bekk hafði milligöngu um að fá Unni Ösp Stefánsdóttur, leikkonu, til þess að hitta nemendur og segja frá leiklistinni og sjálfri sér. Heimsóknin var mjög skemmtileg og eftirminnileg. Það er frábært að fá tækifæri til þess að hlusta á einstaklinga sem eru að standa sig vel og miðla af þekkingu og reynslu. Við óskum Unni Ösp velfarnaðar á listabrautinni með þakklæti fyrir komuna.  
   
   
   
   
   
   
   
   
Kristín Diljá fékk íslenskuverðlaunin að þessu sinni  
   
 
Kristín Diljá með ,,þröstinn sinn góða"  
   
Okkur þótti afar ánægjulegt að tilnefna Kristínu Diljá til þess að taka við íslenskuverðlaunum Menntaráðs Reykjavíkur. Kristín skrifar skínandi góða texta, hefur skemmtilegt hugmyndaflug og hefur afar góðan orðaforða,enda hefur hún verið mikill lestrarhestur. Hún tók við verðlaunagrip í Ráðhúsi Reykjavíkur á ,,degi íslenskrar tungu".  Til hamingju, Kristín Diljá!  
   
   
   
   
   
Skemmtilegir ljóðagestir  
   
 
Rithöfundarnir Anton Helgi Jónsson og Kristín Svava Tómasdóttir, frábærir gestir  
   
Ljóðalestur getur verið ótrúlega skemmtilegur og fjörugur. Það sannaðist þegar þau Kristín Svava og Anton Helgi komu í heimsókn fyrir stuttu. Það var gaman að fylgjast með viðbrögðum nemenda og það var augljóst að þeim þótti gaman. Við þökkum þeim kærlega fyrir skemmtilega heimsókn.  
   
   
   
   
   
   
   
   
Krakkarnir í 10. bekk urðu í 2. sæti í Raunveruleiknum  
María Ösp vann tvenn einstaklingsvikuverðlaun  
   
 
   
Krakkarnir í 10. bekk stóðu sig með sóma í Raunveruleiknum. Þessir krakkar unnu bikarinn í fyrra (9. bekkjar keppnina) þannig að þeir voru í góðri æfingu. María Ösp var mjög dugleg að safna stigum fyrir hópinn og vann tvenn vikuverðlaun einstaklinga og fékk annars vegar gjafabréf - og hins vegar 5.000 krónur í verðlaun. Við erum mjög stolt af nemendum og þeir fengu að hlalda upp á góðan árangur með því að fara á pizzustað saman í vikunni.  
                                                                           
   
   
   
   
   
   
Október  
   
Eiríkur og Hannah Bryndís kynntu myndband um einelti  
   
 
   

Í Skerpu 20. október mættu þau Hannah og Eiríkur, fyrrverandi Tjarnskælingar, með eineltismyndbandið; ,,Einelti er ekkert grín“. Þau hafa bæði verið í Ungmennaráði Miðborgar og Hlíða á þriðja ár en ráðið fékk styrk upp á 1,3 milljónir króna til þess að gera myndbandið. Það er mjög áhrifamikið og vel gert og vekur til umhugsunar. Fleiri fyrrverandi Tjarnskælingar voru þátttakendur í myndbandsgerðinni. Það er gaman að fylgjast með hvað þeir hafa verið framtakssamir og sýnt frumkvæði og verið skapandi á þessu sviði.

 
   
   
   
   
Kvosarkrakkar taka þátt í Evrópuverkefni  
   
 
   
   
Nemendur í Kvos verða þátttakendur í Evrópuverkefni sem Þórir kennari sér um. Þetta verkefni felur m.a. í sér samskipti við nemendur og kennara í Póllandi, Bretlandi, Tékklandi, Ítalíu og Grikklandi. Það verður gaman að fylgjast með framganginum.  
   
   
   
   
   
Raunveruleikurinn aftur á dagskrá  
   
   
Vinningsbikar 10. bekkinga frá því í fyrra   
   
Raunveruleikurinn hófst aftur 18. október. Tíundubekkingarnir eru spenntir og vinna strax vel saman og það er hugur í þeim. Tjarnskælingar unnu bæði 9. og 10.  bekkjar leikinn í fyrra ásamt einstaklingkeppni 10. bekkinga. Þetta er skemmtilegur leikur með fjármála- og lífsleikniívafi. Sá hópur/einstaklingur sem skilar hæstum stigum í hverri viku fær verðlaun, þannig að það er til mikils að vinna. Við bíðum spennt eftir að sjá hverju fram vindur. Sjá nánar á www.raunveruleikur.is
.
 
 
   
   
   
   
Umboðsmaður barna í heimsókn  
   
 
Eðvald E. Stefánsson og Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna   
   
Við fengum góða gesti fyrir skemmstu, þau Margréti Maríu Sigurðardóttur, umboðsmann barna og Eðvald E. Stefánsson, sem er sérfræðingur hjá embættinu. Þau fræddu nemendur m.a. um hlutverk umboðsmannsins og í lok heimsóknar stjórnuðu þau nokkurs konar viðhorfaleik sem féll vel í kramið. Nemendur voru auk þess hvattir til að láta sína rödd heyrast og að vinnuhópar ungs fólks störfuðu með umboðsmanninum. Við þökkum kærlega fyrir góða heimsókn.  
   
   
   
   
   
   
Kátt í keilu  
   
 
   
 
   
 
   
Það var mjög góð stemmning þegar nemendur fóru í Keiluhöllina fyrir skemmstu. Margir sýndu góð tilþrif en það er ekki aðalatriðið, heldur það að nóta félagsskaparins og tilbreytingarinnar.  
   
   
   
   
   
   
   
Tíundi bekkurinn og framhaldsskólarnir  
   
 
Það var tekið vel á móti nemendum í Versló  
   
Nemendur í 10. bekk hafa margar framhaldsskólaheimsóknir á dagskrá vetrarins. Nú þegar hafa þeir farið í Versló og Borgarholtsskóla.  Í lok hverrar heimsóknar skrifa nemendur skýrslu þar sem þeir gera grein fyrir heim-sókninni. Það var vel tekið á móti nemendum í báðum þessum ferðum og þeir fengu hrós fyrir góðar spurningar og framkomu.Heimsóknum af þessu tagi er ætlað að auðvelda nemendum að velja sér skóla að vori.  
   
   
   
   
   
13. september  
   
Skemmtilegur sólarhringur í Gróttu  
   
 
   
   
   
   
   
Nemendur skólans áttu skemmtilegan sólarhring í Gróttu frá fimmtudegi til föstudags. Það er gaman að vera saman í heilan sólarhring, grilla, hafa kvöldvöku, kynnast betur nýjum nemendum njóta þess sem þessi frábæra náttúruperla hefur upp á að bjóða.  
   
   
   
   
Ratleikur um miðborgina  
   
   
Við prjónatréð   
   

Fyrir skömmu fóru nemendur í skemmtilegan ratleik í miðborginni. Öllum nemendum skólans var blandað saman í hópa sem spreyttu sig á að leysa fjölbreytt verkefni;  að finna staði út frá myndbrotum, hreinsa umhverfið, sum verkefni tengdust minningu Jóns Sigurðssonar, svo eitthvað sé nefnt.  Það var fín stemmning í hópnum, sólin skein og síðan var öllum boðið upp á ávaxtahressingu í lokin í skólanum. Kennararnir eiga eftir að fara yfir stigagjöfina og finna út hverjir skoruðu hæst.

 
 
   
   
   
Kvosarkrakkar í gróðursetningarferð  
   


 
 
   

Í lok ágúst  fóru nemendur í Kvos í gróðursetningarferð við Esjurætur. Starfsmaður hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur tók á móti þeim og leiðbeindi. Veðrið var hið ágætasta og hópurinn duglegur. Skógræktin er mannbætandi.

 
 
   
   
   
25. ágúst  
   
Ánægjuleg skólasetning  
   
 
Ragnar og Nanna sem eru í hljómsveitinni Of Monsters and Men  
   
Skólasetninging var í Dómkirkjunni á mánudaginn. Þau Ragnar Þórhallsson og Nanna Hilmarsdóttir sem eru í hljómsveitinni Of Monsters and Men fluttu frábært tónlistaratriði sem skapaði fína stemmningu. Það var einnig mjög skemmtilegt að hitta nemendur og foreldra. Skólaveturinn 2011 - 2012 leggst svo sannarlega vel í okkur! (Það er hægt að hlusta á lagið Love Love Love á Facebook síðu Tjarnarskóla).  
   
   
   
   
10. ágúst  
   
Skólasetning í Dómkirkjunni  
mánudaginn 22. ágúst klukkan 17.00  
   
Skólasetning verður að venju í Dómkirkjunni, mánudaginn 22. ágúst. Athöfnin hefst stundvíslega klukkan 17.00. Okkur finnst alltaf ánægjulegt að sjá sem flesta foreldra og systkini. Afar og ömmur eru einnig velkomin.  
   
Hlökkum til endurfunda við nemendur og foreldra og einnig að bjóða nýja nemendur velkomna í Tjarnarskólahópinn.  
   
   
Innkaupalisti 2011-2012.pdf
 
   
   
 
   
   
   
Skólaárið 2011 - 2012  
   
   
   

Ábyrgðarmaður:  Margrét Theodórsdóttir