Um skólann Lítill skóli með stórt hjarta

fyrir nemendur í 7. - 10. bekk

 

Home
Umsóknir
Starfsmenn
Um skólann
Myndir
Foreldrar/viðhorf
Framhaldsskólar
Skólaráð
Sjálfsmat
Starfsáætlun




    

Einstaklingsmiðað nám

Keppt er að hámarksafköstum hjá hverjum og einum.
Kennslufyrirkomulagið gerir ráð fyrir að hver nemandi  vinni miðað við eigin getu og forsendur.
Námsefni er valið við hæfi hvers og eins.


Heimanám inni í stundaskrá

Mörgum nemendum tekst að ljúka heimanámi í skólanum.
Í heimanámstímum er námstækni nemenda studd og þeir fá aðstoð auk þjálfunar í sjálfstæðum vinnubrögðum. Tölvupóstar með upplýsingum um heimanám eru sendir a.m.k. þrisvar í viku heim til nemenda og foreldra.

Sjálfstæð vinnubrögð og góð námstækni

Markvisst er unnið að góðum námsvenjum.

Ritgerðasmíð og rannsóknarvinna - ótrúlega flott verkefni.

Ýtt er undir skapandi hugsun og frumlega framsetningu.

Ræðumennska er fastur liður í stundaskránni.


Mannræktin í fyrirrúmi

Daglega er lögð áhersla á góð mannleg samskipti.

Kurteisi og fyrirmyndarframkoma er okkar keppikefli.

Unglingunum er leiðbeint við að taka góðar ákvarðanir.

Leyndir hæfileikar eru gjarnan dregnir fram.
 
Unglingarnir fá stuðning í tilfinningaflækjum unglingsáranna.
 

Notalegt námsumhverfi

Áhersla er lögð á að hverjum og einum líði vel

Góður vinnufriður er mikilvæg forsenda þess.

Skólaeiningin er lítil - allir þekkja alla og allar vistarverur eru opnar.

Nemendur í Tjarnarskóla eru almennt ljúfir og góðir krakkar.

Tölvur eru sjálfsögð námsgögn í hverri kennslustund.

Mjög öflugt upplýsinga streymi er frá skóla til foreldra og nemenda. Tölvupóstar eru óspart notaðir og hagnýtum upplýsingum komið reglulega á framfæri.


Einnig má lesa nánar um skólastarfið undir  Starfsáætlun 2011 - 2012 á heimasíðunni.